Bókaðu FlyOver Iceland & Lava Show pakka

Á Grandanum finnur þú hina fullkomnu tvennu sem sameinar fjör og fræðslu. Fyrst virkjar þú öll skilningarvit í flugi yfir stórkostlegt landslag Íslands í Flyover Iceland. Hreyfing, vindur, úði og ilmur gera ferðalagið um landið ógleymanlegt. Að flugi lokni röltir þú yfir í Lava Show þar sem þú sérð alvöru bráðið hraun renna inn í sal fullan af fólki. Hraunið er eins nálægt þér og öruggt er þannig að þú finnur hitann, lyktina og heyrir hljóðin í því stórkostlega náttúrufyrirbæri sem hraunið er.

Bókaðu


GIL-Volcanic-eruption-at-Geldingadalir-2.jpg
HVAÐ ER INNIFALIÐ?

FlyOver Iceland
 

Flyover er sívinsæl afþreying. Fljúgðu yfir láð og lög og leyfðu þér að svífa með norðanvindinum.

FlyOver Iceland notar nýjustu tækni til að veita þér raunverulega flugupplifun. Þú hangir í festingu fyrir framan 300 fermetra hnattlaga sýningartjald með fætur í lausu lofti og horfir á myndina okkar, sem fer með þig í æsispennandi ferðalag um Ísland. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt, ásamt hreyfingum búnaðarins gera þess upplifun ógleymanlega.



Lava Show

Lava Show er eina sýningin í heimi þar sem bráðið hraun flæðir innandyra á öruggan hátt.

Við endursköpum eldgos með því að hita hraun upp í 1.100°C. Glóandi hraunið er látið flæða í sýningarsal okkar þar sem áhorfendur upplifa fegurð og hita hraunsins. Þetta er ótrúleg upplifun sem hrífur öll skynfæri!

Lava Show hlaut verðlaunin, “Best of the Best” frá Tripadvisor árið 2024 og Viator Experience Award árið 2025. Hér er á ferðinni fræðsla og afþreying í hæsta gæðaflokki.

FOA_2025_BlackFriday_AI_CreativeC.png

AÐ KOMAST Á MILLI STAÐA

Það er auðvelt að komast á milli Flyover Iceland og Lava Show en á milli þessara tveggja staða er stutt ganga eftir Fiskislóðinni. Gera má ráð fyrir að vera um 5 mínútur að ganga þessa 500 metra. Nánari upplýsingar um hvernig á að komast að Flyover Iceland má finna hér.

back to top