Tripadvisor Travelers' Choice Award 2024
Þú situr í sæti fyrir framan 20 metra hnattlaga sýningartjald með fætur í lausu lofti og horfir á myndina okkar, sem fer með þig í æsispennandi ferðalag um Ísland. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt, ásamt hreyfingum búnaðarins gera þess upplifun ógleymanlega.
Flyover verður enn betra þegar þú flýgur í gegn með premium pakkanum. Þú slakar á fyrir flugtak með drykk í hönd, ferð fremst í röðina inn í flugið og svífur svo yfir jökla og firði okkar stórkostlega lands. Að flugi loknu tekur þú með þér myndir af þér og ferðafélögunum til að tryggja að ferðin fari beint í minningabankann.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Árskort veitir þér ótakmarkaðan aðgang að töfrum FlyOver Iceland í heilt ár. Þetta er tækifærið þitt til að fljúga yfir stórbrotið landslag og náttúruundur eða iðandi mannlíf stórborga allan ársins hring. Leyfðu ævintýraþránni að leiða þig aftur og aftur.
KYNNTU ÞÉR MEIRABörn verða að vera að minnsta kosti 100 cm á hæð. Börn (13 ára og yngri) verða að vera í fylgd með fullorðnum eða forráðamanni (14 ára eða eldri).
Þriðjudagar eru allt annað en hversdagslegir enda tilboðsdagar. Taktu á flug með 2000 kr afslætti sem gildir allan daginn, fyrir fullorðna og börn, á eina sýningu eða tvöfalda.
Bókaðu miða fyrir bæði Believe Chicago og Ísland og borgaðu aðeins aðeins 2.845 kr. aukalega.
Flyover verður enn betra þegar þú flýgur í gegn með premium pakkanum. Þú færð drykk, mynd og forgang í röð og nýtur stórbrotinnar flugferðar yfir Ísland.
Það borgar sig að bóka fyrir fram. Með netbókun tryggir þú þér sæti og færð lægsta verðið.
Keyptu miða á afslætti sama dag & þú heimsækir okkur. Miðinn gildir í ár. Frekari upplýsingar í móttöku.
Njóttu þess að upplifa töfra FlyOver Iceland allan ársins hring með árskorti sem veitir þér ótakmarkaðan aðgang að FlyOver Iceland og vegleg fríðindi. Árskort er eingöngu hægt að kaupa í afgreiðslu FlyOver Iceland, Fiskislóð 43.
Ísland er kraftmikill staður. Áður en við fljúgum með þig yfir landið sérð þú tvær margmiðlunarsýningar sem segja frá menningu og hugarfari Íslendinga.
LANGHÚSIÐ
SAGAN GLÆDD LÍFI
Stígðu inn í forníslenskt langhús víkinganna þar sem átakasögu landsins eru gerð skil. Hér mun gráhærður sögumaður flytja sögur sem birtast svo ljóslifandi í skuggamyndum.


BRUNNUR TÍMANS
UPPLIFÐU SKÖPUN EYJUNNAR
Ísland er kraftmikill staður! Kynntu þér ævaforn náttúruöflin sem landnámsmenn Íslands upplifðu í glæsilegri og áhrifamikilli kynningu með tónlist, hreyfimyndum, myndskeiðum og mjög vitru trölli.